Myndskeið á vefnum
Grípandi tekur að sér að útbúa myndskeið til kynningar á vefnum:
- Myndskeið á mörgum tungumálum.
- Aðlögun yfir á íslensku á tilbúnum myndskeiðum.
- Einföld kynningarmyndskeið.
- Hreyfigrafík (motion graphics)
- Hreyfigrafík – hraðþjónustsa
- Gagnvirk myndskeið (interactive).
Dæmi um myndskeið
Hreyfigrafík
Einföld og ódýr myndskeið með hreyfigrafík (motion graphics). 96% af Fortune 500 fyrirtækjum í USA nota lausnina sem Grípandi býður. Byggð á tilbúnum, fljótlegum sniðmátum.
Dæmi: Íslandsupplýsingar
Hér var búið til dæmi um kynningu á Íslandi. Útgáfurnar eru á níu tungumálum: Íslensku, ensku, frönsku, pólsku, lettnesku, litháensku, rúmensku, filippeyísku og taílensku. “Þulirnir” og talið eru tölvugerð.
Dæmi : Ímyndað hótel
Gerð voru stutt kynningarmyndskeið fyrir ímyndað hótel, “The Best Hotel”, á tíu tungumálum: Íslensku, ensku, þýsku, spænsku, dönsku, sænsku, arabísku, hindí, kínversku og japönsku.
Gagnvirk myndskeið
Þegar myndskeið eru gagnvirk (e. interactive) þá stýrir áhorfandinn ferðinni, og velur hvaða kafla skal næst skoða úr valkostum. Þetta getur aukið áhorf og lækkað kostnað við að ná markmiði.
Dæmi: Aðlagað myndskeið
Hér voru tekin nokkur myndskeið um endurvinnslu sem voru upprunalega á grísku með enskum undirtexta. Íslenskur texti var gerður, íslenskt og enskt tal tekið upp, og skipt um tal og tónlist.
Dæmi: Matvæli
Væntanlegt sýnishorn um myndskeið sem er gert fyrir ímyndaðan framleiðanda að matvælum, til að auka viðskipti eða fræða, á nokkrum tungumálum. (Smelltu til að sjá eldra dæmi frá 2009).
Hátæknibúnaður
Sýnishorn um myndskeið sem er gert um ímyndaðan hátækni tækjabúnað. Þetta gæti verið myndskeið til að ná í viðskipti, eða leiðbeiningar um notkun, á nokkrum tungumálum.
Væntanlegt
Snyrtivara
Sýnishorn um myndskeið sem er gert um ímyndað snyrtivörumerki. Gert í stærðarhlutföllum 16:9, 1:1 og 9:16 fyrir Youtube, Facebook, Facebook stories, Instagram, Pinterest, Tiktok o.s.frv.
Væntanlegt
Fyrri verk
Grípandi hóf starfsemi árið 2009, svo það er 12 ára reynsla undir beltinu.
Nýir möguleikar – lægri kostnaður – styttri tími
Lausnirnar sem eru boðnar hér eru af nýju tagi sem ekki hefur sést áður á Íslandi. Með notkun gervigreindar er hægt að búa til myndskeið með talsmönnum/kynnum (presenter/avatar), sem líta út eins og raunverulegar manneskjur og tala á fjölmörgum tungumálum. Tölvutæknin gerir kleift að gera þetta á styttri tíma og með mun lægri kostnaði en áður, án þess að það þurfi upptökustúdíó með búnaði og aðstoðarfólki, og leikara sem talar viðkomandi tungumál. Ef þarf að endurtaka eða breyta er það líka mun fljótlegra heldur en ef þyrfti að endurtaka allt saman í upptökustúdíói.
Hafðu samband – ræðum málin
Ertu með starfsemi sem getur bætt árangurinn með því að nota myndskeið? Hafðu endilega samband, það kostar ekkert að ræða málin.
Síminn er 773 7100
tölvupóstur er video@gripandi.com
Einnig má senda skilaboð á Facebooksíðu: facebook.com/gripandi
Myndskeið á nokkrum tungumálum
Þarft þú að koma upplýsingum til fólks sem talar mismunandi tungumál? Grípandi býr til vefmyndskeið (og tengt myndefni) með útgáfum á íslensku, ensku og öðrum tungumálum með nýrri nálgun. Með því að nota vélalestur með gervigreind og sérþróað verkferli næst mun meiri hagkvæmni en áður. Vefmyndskeið á Youtube á eigin tungumáli viðkomandi geta haft mjög sterka stöðu gagnvart leitarvélabestun.
Kostir
76% af vefnotendum kjósa að fá upplýsingar, og kaupa vöru eða þjónustu á eigin tungumáli.
4 sinnum fleiri neytendur vilja horfa á myndskeið frekar en að lesa bara texta um vöruna eða þjónustuna.
Kaupendur á vefnum sem horfa á myndskeið um vöruna eru nærri 2 sinnum líklegri til að kaupa.
Aðeins fjórðungur af alþjóðlegum vefnotendum tala ensku, þrír fjórðu tala önnur tungumál.
Hvernig finna Leitarvélar myndskeið?
Ef þú vilt ná til fólks sem talar mismunandi tungumál er leitarvélabestun á Youtube sterkur leikur.
Mun líklegra er að myndskeið með leitarorðum á tungumáli viðkomandi komi fram í leit á Youtube og Google, enda samkeppnin oft minni.
Youtube er önnur stærsta leitarvélin á vefnum.
Google er eigandi Youtube og sýnir oft myndskeið á niðurstöðusíðu vefleitar á Google.
Frekari upplýsingar
Hér finnur þú frekari upplýsingar um fjórar grunngerðir myndskeiða, um kynna (persónur/avatars) sem eru í boði, gerð mynda, texta og hljóða, þrjár gerðir notenda, um vandlega úthugsaða verkferla, og fjölda tungumála sem gera má myndskeið á.
Smelltu hér til að sjá frekari upplýsingar
Möguleikar á samstarfi
Rekstraraðili Grípandi er ekki grafískur hönnuður að mennt, en var hins vegar listaskólanemandi og hefur hannað alla tíð. Fyrir hendi er geta til að vinna einfalda hönnun, en sú geta er ekki af sama tagi og hjá menntuðum grafískum hönnuði. Fyrir fyrirtæki sem eru með skíra stefnu um grafískt viðmót, og fyrir grafísk hönnunarfyrirtæki sem vilja láta búa til myndskeið á fjölda tungumála, eða aðlaga einfalda hreyfigrafík, eða gera gagnvirk myndskeið, þá er sjálfsagt mál að vera í samstarfi um hönnunar og stílíseringarþáttinn.
Hafðu samband
- gripandi@gripandi.com
- (+354) 773 7100
- Facebook Grípandi
Grípandi er tengt Marktak verkefnastofu sem býður þjónustu við vinnslu verkefna á sviði markaðsmála, rannsókna og rekstrar.
Fjölbreytt verksvið: Viðskiptafræðingur með bakgrunn í verkefnavinnu, vöruþróun, skipulagningu rekstrar, rannsóknum og úrvinnslu upplýsinga, myndlistarnámi og hönnun, videogerð fyrir vefinn, vefgerð, blaðamennsku, textagerð, textaskrifum á ensku og þýðingum, sölumennsku, og markaðsmálum á vefnum.